Össur eykur stuðning við Úkraínu

Össur
24-05-2023
News

Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið Össur hf. hefur skrifað undir rammasamkomulag um frekara samstarf við endurhæfingaspítalann Unbroken Medical Center, í Lviv í Úkraínu. Fjöldi aflimaðra í Úkraínu eykst dag frá degi sökum yfirstandandi stríðs og gera óopinberar tölur ráð fyrir að fjöldi hermanna og óbreyttra borgara sem þurfa á stoðtækjum að halda sé um og yfir 20.000.

Það er mikil og vaxandi þörf fyrir stoðtækjalausnir og kliníska sérfræðinga sem geta þjálfað heilbrigðisstarfsfólk í Úkraínu og veitt sjúklingum þá þjónustu sem þarf til langframa.

Frá því stríðið hófst í febrúar 2022 hefur Össur gefið stoðtæki og þjálfað á annan tug úkraínískra sérfræðinga í lausnum fyrirtækisins. Samkomulagið sem undirritað var í dag undirstrikar vilja beggja aðila að ganga enn lengra í að stofna til viðskiptasambands með það að markmiði að finna skilvirka leið til að útvega þjálfun og þjónusta fleiri sjúklinga með lausnum Össurar.

„Össur er eitt af fáum fyrirtækjum á heimsvísu sem hefur heildstæða þekkingu og lausnir sem geta skipt sköpum í því ástandi sem nú ríkir í Úkraínu. Við erum einbeitt í að leggja okkar af mörkum við að byggja upp þá þjónustu sem þarf til að ná til þeirra fjölmörgu einstaklinga í Úkraínu sem þurfa á stoðtækjum og varanlegri endurhæfingu að halda.“

Sveinn Sölvason, forstjóri Össurar
Sveinn Sölvason forstjóri Össurar ásamt starfsfólki Unbroken endurhæfingaspítalans í Lviv.
Sveinn Sölvason ræðir við úkraínskan hermann að nafni Sergei sem mun brátt fá stoðtæki og hefja endurhæfingu hjá Unbroken.
Sveinn Sölvason undirritar viljayfyrlýsingu við Unbroken að viðstöddum Andriy Sadovy borgarstjóra Lviv, Degi B. Eggertssyni borgarstjóra Reykjavíkur og Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur forseta borgarstjórnar.