Össur á Nýsköpunarviku 2021

Össur
27-05-2021
News

Össur tók þátt í Nýsköpunarvikunni þann 27. maí með opnum viðburði á Teams. Þar var ný byltingarkennd vara kynnt og farið yfir hugmynda- og þróunarvinnuna sem liggur að baki.

Fyrirlesturinn fór fram á ensku.

Össur: 50 years of Life Without Limitations

Nýsköpunarvikan er hátíð þar sem fyrirtækjum og frumkvöðlum gefst kostur á að standa fyrir Nýsköpunartengdum viðburðum þar sem spennandi sóknarfæri og frjóar hugmyndir geta sprottið upp.

Á hátíðinni, sem verður haldin dagana 26. maí til 2. júní, verður vakin athygli á nýsköpun sem á sér stað innan stofnana, fyrirtækja og sprotafyrirtækja þar sem framúrstefnulegar lausnir, ólík sköpunarferli og kraftmiklir frumkvöðlar fá notið sín. Nýsköpunarvikan er þannig vettvangur fyrir innlenda jafnt sem erlenda aðila til að kynnast nýsköpun á Íslandi, tengjast sprotum, fjárfestum og frumkvöðlum og mynda ný viðskiptasambönd og tengsl.

Nánari upplýsingar á www.nyskopunarvikan.is