Össur á Íslandi og loftslagsmál
Össur
08-07-2020
News
Árið 2016 setti Össur á Íslandi sér það markmið að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi sinni um 50% árið 2020, miðað við árið 2015. Stærstu losunarþættir starfseminnar eru viðskiptaferðir starfsmanna og útflutningur.
Niðurstöður ársins 2019 sýna að losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi Össurar á Íslandi hefur dregist saman um tæp 39% miðað við árið 2015. Þar vegur þyngst kolefnisjöfnun viðskiptaferða en um 10000 tré verða gróðursett til að kolefnisjafna 1000 tonn CO2. Þetta jafngildir árlegum akstri tæplega 340 bensínknúinna fólksbíla. Hlutfall úrgangs sem var endurunninn eða endurnýttur var 47% árið 2019.
Nánari upplýsingar um frammistöðu Össurar í umhverfismálum má finna í skýrslum um samfélagsábyrgð hér.