Össur er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri

Össur
15-10-2020
News

Viðurkenning: Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2020

Össur hefur verið valið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2020 samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Fyrirtækin sem komust á listann í ár eru um 2,8% íslenskra fyrirtækja. Fyrirtæki þurfa að uppfylla ströng skilyrði um afkomu, eiginfjárhlutfall, tekjur og eignir og er það okkur heiður að vera á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar í ár.

Forsendur

  • Rekstrarárin 2019 og 2018 liggja til grundvallar en tekið er tillit til rekstrarársins 2017.
  • Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
  • Tekjur þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna.
  • Eignir þurfa að hafa verið umfram 80 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.
  • Aðrir þættir metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni. T.d. skil á ársreikningi og rekstrarform.

Samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar er Össur í 3. sæti í flokki stórra fyrirtækja þegar framangreindar forsendur eru metnar.  Þar kemur til dæmis fram að tekjur fyrirtækisins á árinu 2019 voru rúmlega 84 milljarðar og eignir rúmlega 132 milljarðar. Eiginfjárhlutfallið var 52%.