Framúrskarandi og Fyrirmyndarfyrirtæki 2025

Framúrskarandi Fyrirtæki 2025
Embla Medical hf., móðurfélag Össurar, er í hópi þeirra 2,5% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo á framúrskarandi fyrirtækjum árið 2025. Creditinfo hefur í sextán ár vottað Framúrskarandi fyrirtæki í íslensku atvinnulífi fyrir góðan og traustan rekstur. Við erum mjög stolt að ná þessum árangri að vera framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo frá uppihafi.
Frekari upplýsingar um listann má finna hér.
Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi?
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
- Ársreikningi skal skilað lögum samkvæmt eigi síðar en átta mánuðum eftir uppgjörsdag. Tekið verður tillit til allra opinberra framlenginga RSK á skilafresti
- Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
- Rekstrartekjur að lágmarki 60 milljónir króna reikningsárin 2023-2024 og að lámarki 55 milljónir króna reikningsárið 2022
- Fyrirtæki með rekstrartekjur yfir 2 milljarða króna þurfa að fylla út spurningalista um sjálfbærni
- Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Rekstrarhagnaður (EBIT) > 0 reikningsárin 2022-2024
- Jákvæð ársniðurstaða reikningsárin 2022-2024
- Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% reikningsárin 2022-2024
- Eignir að minnsta kosti 120 milljónir króna reikningsárin 2023-24, og að lágmarki 110 milljónir króna reikningsárið 2022
Fyrirmyndarfyrirtæki 2025
Embla Medical hf., móðurfélag Össurar, hefur verið valið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2025 samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Fyrirtækin sem komust á listann í ár eru um 2,6% íslenskra fyrirtækja. Fyrirtæki þurfa að uppfylla ströng skilyrði um afkomu, eiginfjárhlutfall, tekjur og eignir og er það okkur heiður að vera á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar í ár.
Frekari upplýsingar um listann má finna hér.
Hvað þarf til að teljast til fyrirmyndar?
- Rekstrarárin 2024 og 2023 liggja til grundvallar en tekið er tillit
til rekstrarársins 2022. - Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
- Tekjur þurfa að hafa verið umfram 50 milljónir króna.
- Eignir þurfa að hafa verið umfram 90 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.
- Aðrir þættir metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Til dæmis skil á ársreikningi og rekstrarform.