Framúrskarandi og Fyrirmyndarfyrirtæki 2022

Össur
20-10-2022
News

Framúrskarandi Fyrirtæki 2022

Össur er í hópi þeirra 2% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo á framúrskarandi fyrirtækjum árið 2022. 

Stefnumið Össurar er að bæta hreyfanleika fólks með tækni, rannsóknum og nýsköpun. Fyrirtækið aðhyllist mannleg gildi í hvívetna og vinnur náið með þeim sem þurfa á vörunum að halda. Þannig hefur Össur með öflugu starfsfólki sínu náð frábærum árangri í starfi og séð markmiðin verða að veruleika; fólk yfirstígur líkamlegar hindranir, fær notið sín til fulls og öðlast betra líf.

Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi?

  • Hefur skilað ársreikningi til RSK fyrirrekstrarárin 2019-2021
  • Hefur skilað nýjasta ársreikningi á réttum tíma
  • Er í lánshæfisflokki 1-3
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) var jákvæður rekstrarárin 2019-2021
  • Ársniðurstaða var jákvæð rekstrarárin 2019-2021
  • Eiginfjárhlutfall var a.m.k. 20% rekstrarárin 2019-2021
  • Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
  • Framkvæmdarstjóri er skráður í fyrirtækjaskrá RSK
  • Rekstrartekjur voru að lágmarki 50 m.kr. rekstrarárin 2019-2021
  • Eignir voru a.m.k. 100 m.kr. rekstrarárin 2019-2021

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2022

Össur hefur verið valið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2022 samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Fyrirtækin sem komust á listann í ár eru um 2,3% íslenskra fyrirtækja. Fyrirtæki þurfa að uppfylla ströng skilyrði um afkomu, eiginfjárhlutfall, tekjur og eignir og er það okkur heiður að vera á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar í ár.

Frekari upplýsingar um listann má finna hér

Hvað þarf til að teljast til fyrirmyndar

  • Rekstrarárin 2021 og 2020 liggja til grundvallar en tekið er tillit til rekstrarársins 2019.
  • Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
  • Tekjur þurfa að hafa verið umfram 40 milljónir króna.
  • Eignir þurfa að hafa verið umfram 80 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.
  • Aðrir þættir metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Til dæmis skil á ársreikningi og rekstrarform.