Össur er Framúrskarandi fyrirtæki 2020
Össur
22-10-2020
News
Framúrskarandi frá upphafi
Össur er í hópi þeirra 2% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo á framúrskarandi fyrirtækjum árið 2020.
Stefnumið Össurar er að bæta hreyfanleika fólks með tækni, rannsóknum og nýsköpun. Fyrirtækið aðhyllist mannleg gildi í hvívetna og vinnur náið með þeim sem þurfa á vörunum að halda. Þannig hefur Össur með öflugu starfsfólki sínu náð frábærum árangri í starfi og séð markmiðin verða að veruleika; fólk yfirstígur líkamlegar hindranir, fær notið sín til fulls og öðlast betra líf.
Össur er meðal 63 fyrirtækja sem hafa verið á þessum lista frá upphafi og er það mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu ellefta árið í röð.
Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi?
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
- Ársreikningi skilað lögum samkvæmt eigi síðar en átta mánuðum eftir uppgjörsdag
- Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
- Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna síðustu þrjú ár
- Rekstrarhagnaður (EBIT > 0) síðustu þrjú ár
- Jákvæð ársniðurstaða síðustu þrjú ár
- Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár
- Eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðustu þrjú ár