Össur - uppgjör þriðja ársfjórðungs 2011

Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 11/2011
Reykjavík, 27. október 2011

GÓÐUR SÖLUVÖXTUR

Sala - Söluvöxtur á þriðja ársfjórðungi var 12%, mælt í staðbundinni mynt. Heildarsalan nam 101 milljón Bandaríkjadala samanborið við 87 milljónir dala á þriðja ársfjórðungi 2010. Öll landsvæði og vörumarkaðir sýndu vöxt á þessum ársfjórðungi. Sala á spelkum og stuðningsvörum var sérstaklega góð og skilaði 17% söluvexti, mælt í staðbundinni mynt. Söluvöxtur í stoðtækjum var jafnframt góður eða 7%, mælt í staðbundinni mynt.

Arðsemi - Arðsemi Össurar er áfram góð og jókst hagnaður félagsins um 165% samanborið við þriðja ársfjórðung 2010. EBITDA nam 21 milljón Bandaríkjadala eða 21% af sölu. Framlegð nam 64 milljónum dala eða 63% af sölu og hagnaður nam 11 milljónum dala eða 11% af sölu.

Jón Sigurðsson, forstjóri:

"Salan á þriðja ársfjórðungi var mjög góð og við erum ánægð með frammistöðuna, enda sýndu öll landsvæði og vörumarkaðir vöxt. Gott og stöðugt framboð á nýjum vörum er mikilvægt fyrir vöxt félagsins og þær vörur sem komu á markað á þessu ári og því síðasta áttu stóran þátt í þessari velgengni. Á ársfjórðungnum kynntum við enn eina vöruna í Bionic vörulínu félagsins, SYMBIONIC LEG, sem er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Varan sameinar eiginleika RHEO KNEE og PROPRIO FOOT og veitir einstaka virkni fyrir þá sem eru aflimaðir fyrir ofan hné. Þessi nýja viðbót í Bionic vörulínunni staðfestir forystu okkar í rafeindastýrðum stoðtækjum með gervigreind."

Helstu tíðindi á fjórðungnum:

Áætlun 2011 - Fyrir árið 2011 gera stjórnendur ráð fyrir innri söluvexti á bilinu 4-6%, mælt í staðbundinni mynt, og að EBITDA, leiðrétt fyrir einskiptistekjum og -kostnaði, verði á bilinu 20-21% af veltu fyrir árið í heild. Engar breytingar hafa orðið frá áður birtri áætlun fyrir árið 2011.

Símafundur föstudaginn 28. október kl. 10:00

Á morgun, föstudaginn 28. október 2011, verður haldinn símafundur þar sem farið verður yfir niðurstöður þriðja ársfjórðungs. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00 CET.  Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður hægt að fylgjast með honum á netinu á slóðinni www.ossur.com/investors

Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660

Nánari upplýsingar:

Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044

Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna á www.ossur.com/investors