Össur hefur gert samning um viðskiptavakt í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn

Össur hf. hefur í dag gert samning við Nordea Markets (deild innan Nordea Bank Danmark A/S) um viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn.
 
Samningnum er ætlað að auka viðskipti með hlutabréf Össurar í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn og stuðla að skilvirkri og gegnsærri verðmyndun á hlutabréfum félagsins.
 
Samkvæmt samningnum mun Nordea Markets setja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins alla viðskiptadaga í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn. Munur milli kaup- og söluverðs má ekki fara yfir 4,0%.
 
Samningurinn mun taka gildi 4. september 2009, þegar hlutabréf félagsins hafa verið skráð opinberlega og tekin til viðskipta í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn.
 
 
Nánari upplýsingar veita:
Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515 1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044