Össur hf. - Stjórnendaskipti hjá Össuri í Ameríku

Mahesh Mansukhani hefur verið ráðinn til starfa sem framkvæmdastjóri Össurar í Ameríku. Mahesh tekur við af Eyþóri Bender sem mun starfa áfram sem ráðgjafi hjá félaginu.
 
Mahesh kemur frá ráðgjafafyrirtækinu AlixPartners og er með MBA gráðu frá Yale háskóla. Hann hefur yfir 12 ára reynslu í stjórnendastarfi, meðal annars stýrði hann dótturfélagi DuPont sem velti 1,1 milljarði Bandaríkjadala.
 
,,Ég vil þakka Eyþóri Bender fyrir hans mikilvæga framlag til velgengni félagsins." sagði Jón Sigurðsson forstjóri Össurar hf. ,,Mahesh hefur víðtæka stjórnendareynslu og verður sterk viðbót í stjórnendahóp Össurar."
 
 
Um Össur hf.:
 
Össur hf.  (OMX:  OSSR)  er  alþjóðlegt  fyrirtæki  á  sviði  stoð- og stuðningstækja sem  hjálpar  fólki  að  lifa  lífinu  án  takmarkana. Fyrirtækið leggur áherslu á að  auka hreyfigetu fólks með nýsköpun  í tækni á sviði spelkna- og stuðningsvara, gervilima og vörum til  nota við blóðrásarmeðferðir. Össur hf. leggur mikla áherslu á fjárfestingu í rannsókn  og  vöruþróun  sem  viðheldur  sterkri  stöðu  Össurar  á markaðnum. Össur  leggur metnað  sinn í  að veita  viðskiptavinum  og notendum góða  þjónustu til  þess  að þeir  nái sem  bestum  árangur. Höfuðstöðvar félagsins eru  á Íslandi og  helstu starfsstöðvar eru  í Ameríku, Evrópu og Asíu, auk dreifiaðila víðsvegar um heim. www.ossur.com